Handbolti

Guðjón Valur óstöðvandi í leiknum um Ofurbikarinn

Guðjón Valur er hann samdi við félagið.
Guðjón Valur er hann samdi við félagið. mynd/barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson byrjaði feril sinn hjá Barcelona með látum er Börsungar unnu leikinn um Ofurbikarinn, Super Cup, á Spáni.

Guðjón Valur skoraði átta mörk fyrir Barcelona í 32-28 sigri á Granollers. Guðjón var markahæstur allra á vellinum.

Jafnt var í hálfleik, 14-14, en Barcelona tók yfir leikinn í síðari hálfleik. Guðjóni Val var mikið hrósað fyrir frammistöðu sína í leiknum og það var ekki síst stórleikur hans sem varð þess valdandi að Granollers tapaði leiknum.

Barcelona vann alla leiki sína í spænsku deildinni á síðustu leiktíð og er útlit fyrir að liðið endurtaki þann leik á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×