Handbolti

Guðjón Valur og félagar flugu inn í undanúrslit bikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. vísir/epa
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, og félagar hans í spænska stórliðinu Barcelona eru komnir í undanúrslit Konungsbikarsins þar í landi.

Barcelona mætti næstbesta liðið Spánar, Naturhouse La Rioja, í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum í kvöld á útivelli og vann sex marka sigur, 35-29.

Fyrri leikinn á heimavelli sínum í Katalóníu vann Barcelona með ellefu marka mun, 39-28, og einvígið samanlagt með 17 mörkum, 74-57.

La Rioja-menn fá svo væntanlega enn einn skellinn gegn Börsungum á sunnudaginn þegar liðin mætast í uppgjöri efstu liða spænsku 1. deildarinnar.

Barcelona er þar á toppnum með 46 stig eftir 23 sigra í röð en Naturhouse er með 38 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×