Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í stórsigri Barcelona

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðjón Valur raðar inn fyrir Börsunga.
Guðjón Valur raðar inn fyrir Börsunga. mynd/barcelona
Barcelona valtaði yfir Anaitasuna á útivelli, 43-30, í annarri umferð spænsku 1. deildarinnar í handbolta í kvöld.

Heimamenn héldu í við Spánarmeistarana í fyrri hálfleik, en aðeins munaði tveimur mörkum á liðunum eftir hann, 21-19.

Barcelona vann seinni hálfleikinn með ellefu mörkum og leikinn með þrettán mörkum. Lokatölur, 43-30.

Guðjón Valur Sigurðsson og kollegi hans í hægra horninu, VíctorTomás, skoruðu báðir níu mörk fyrir Barcelona í leiknum og voru markahæstir á vellinum.

Barcelona er með fjögur stig af fjórum mögulegum eftir tvær umferðir í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×