Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í sínum fyrsta leik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðjón Valur er hann skrifaði undir samning hjá Barcelona.
Guðjón Valur er hann skrifaði undir samning hjá Barcelona. Mynd/Barcelona.es
Guðjón Valur Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í 31-30 sigri á GWD Minden í æfingarleik í gær. Guðjón var markahæstur í liði Barcelona í sigrinum.

Guðjón Valur gekk til liðs við spænsku meistarana frá Kiel í Þýskalandi og talaði um að það væri draumur að rætast er hann skrifaði undir hjá spænska stórveldinu.

Allir helstu leikmenn Barcelona voru með í fyrsta æfingarleik liðsins en þeir lentu í töluverðum vandræðum gegn þýska liðinu sem var yfir 19-14 í hálfleik. Í seinni hálfleik náðu leikmenn spænska liðsins hinsvegar að snúa taflinu við og tryggja sér sigur í fyrsta leik vetrarins.

Líkt og áður segir var Guðjón Valur markahæstur í liði Barcelona með sjö mörk en franski landsliðsmaðurinn Nikola Karabatic bætti við öðrum sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×