Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í sigri á Lemgo | Naumur sigur Veszprem

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðjón Valur fagnar marki með Löwen.
Guðjón Valur fagnar marki með Löwen. Vísir/Getty
Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og félagar í Rhein-Neckar Löwen unnu öruggan 33-28 sigur á Lemgo í eina leik dagsins í þýska handboltanum en með sigrinum kemst Löwen upp fyrir Kiel í annað sæti þýsku deildarinnar.

Löwen átti tvo leiki til góða á toppliðin tvö, Flensburg og Kiel og gat með sigri í dag komist upp fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar og um leið saxað á forskot Flensburg.

Það var ekki annað að sjá en að gestirnir væru klárir þegar leikurinn hófst en Löwen náði um miðbik fyrri hálfleiks fimm marka forskoti og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik 17-13.

Lemgo náði aldrei að gera alvöru atlögu að forskotinu í seinni hálfleik en með Guðjón Val á flugi náði Löwen að innbyrða fimm marka sigur.

Fyrr í dag léku Aron Pálmarsson og félagar í Veszprem fyrri leik liðsins gegn PPD Zagreb í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en Veszprem tekur eins marka forskot í heimaleikinn sem fer fram í Ungverjalandi á laugardaginn næsta.

Gestirnir náðu snemma þriggja marka forskoti og leiddu 12-10 í hálfleik en áttu í erfiðleikum með að hrista Króatana frá sér.

Fór svo að PPD Zagreb jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks en ungverska liðið svaraði með fjórum mörkum í röð og breytti stöðunni í 18-14 var staðan því vænleg fyrir Ungverjana.

Zagreb náði að laga stöðuna töluvert á lokasprettinum og minnka muninn niður í eitt mark fyrir lok leiksins en það verður erfitt fyrir króatíska liðið að sækja eitthvað á heimavelli silfurliðsins frá því í fyrra.

Aron komst á blað með eitt mark en Gasper Marguc og Renato Sulic voru markahæstir í liði Veszprem með fjögur mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×