Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í naumum sigri Löwen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði sjö mörk úr níu skotum.
Guðjón Valur skoraði sjö mörk úr níu skotum. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Rhein-Neckar Löwen sem vann Meshkov Brest með minnsta mun, 25-24, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Þýsku meistararnir voru komnir í erfiða stöðu en þegar fjórar og hálf mínúta voru eftir leiddu Hvít-Rússarnir tveimur mörkum, 22-24.

En Löwen skoraði þrjú síðustu mörk leiksins og tryggði sér sigurinn. Andy Schmid gerði tvö þeirra og Guðjón Valur eitt.

Schmid og Guðjón Valur skoruðu báðir sjö mörk fyrir Löwen. Alexander Petersson komst ekki á blað í leiknum.

Með sigrinum komst Löwen á topp riðilsins. Vardar getur þó endurheimt toppsætið með sigri á Celje á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×