Handbolti

Guðjón Valur átti stórleik í enn einum sigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn skoraði níu mörk fyrir Barcelona í dag.
Landsliðsfyrirliðinn skoraði níu mörk fyrir Barcelona í dag. Mynd/Barcelona
Börsungar unnu enn einn sigurinn í spænska handboltanum í dag.

Nú voru það liðsmenn Ademar León sem lentu undir Barcelona-valtaranum, en leiknum lyktaði með sex marka sigri spænsku meistaranna, 37-43.

Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik, skoraði níu mörk úr tíu skotum og var markahæstur í liði Börsunga. Nikola Karabatic, Raul Entrerrios og Daniel Sarmiento komu næstir með sex mörk hver.

Barcelona er búið að vinna alla 14 deildarleiki sína í vetur og er með fjögurra stiga forystu á Naturhouse La Rioja á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×