Handbolti

Guðjón Valur: Vitum nákvæmlega hvað Gummi gerir í kvöld

Arnar Björnsson í Doha skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson náði sér ekki á strik gegn Tékkum en frammistaða hans tveimur sólarhringum síðar var stórkostleg.  Þar sýndi hann enn og sannaði að fáir komast með tærnar þar sem hann hefur hælana.  

Munurinn á tilfinningum þínum eftir Tékkaleikinn annars vegar og Egyptaleikinn hinsvegar. „Svipaðar og þínar held ég, þú varst ekki ánægður með mig eftir Tékkaleikinn en ánægðari með mig í dag. Ætli það sé ekki eins hjá öllum“.

En af hverju þessi munur? „Það er rosalega góð spurning sem á fyllilega rétt á sér en ég hef ekkert svar við henni.  Undirbúningur okkar var svipaður fyrir leikina en við mættum ekki til leiks gegn Tékkum.  Hvers vegna er erfitt að svara þegar lið eru andlaus og ekki upp á sitt besta.  Okkur tókst að snúa þessu við og við verðum að halda sama hugarfari og í síðasta leik“.

Sigurinn kannski athyglisverðari þar sem Eygptarnir skoruðu fjögur af fimm fyrstu mörkunum?

„Kannski ekkert sætari en það var flott að sjá hvernig menn héldu haus, vörnin hélt og Bjöggi var flottur fyrir aftan hana.  Við höfum alltaf á einhverju góðu að byggja, þurftum að leysa þeirra varnarleik sem við gerðum frábærlega“.

Nú bíður ykkar allt annar mótherji, Danir spila öðru vísi en Egyptar.  Er gaman að spila á móti Dönum?

„Já það er það.  Síðasti leikur í byrjun janúar var góður en leikirnir þar áður kannski ekki en þar áður voru þetta æðislegir leikir, jafnir og mikil barátta. Þetta eru lið sem þekkjast vel og leikurinn annað kvöld verður væntanlega hörkuleikur“.

Nú ertu að spila gegn gamla þjálfaranum þínum er það eitthvað öðru vísi að horfa á Gumma hinum megin mjög stressaðan?

„Hann var alltaf stressaður með okkur líka svo það er alveg sama hvorum megin hann er. Ég held að þetta sé miklu erfiðara fyrir hann heldur en okkur.  Þetta er óneitanlega sérstakt.  En hann leggur upp leik danska liðsins og við erum að spila við leikmennina.  Hann kemur ekki til með að taka boltann og valda okkur erfiðleikum.  Við komum ekkert til með að horfa sérstaklega á hann.“

„Við vitum nákvæmlega hvað hann kemur til með að segja við þá um okkur og hvernig hann leggur leikinn upp. Hann þekkir okkar styrkleika.  Við erum úr leik ef við töpum en það er alveg klárt að við förum í leikinn við Dani til að vinna. Ég er ekki hér til að sannfæra þig, ég þarf að sannfæra leikmennina svo við séum allir á sömu blaðsíðunni.“

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Nyegaard: Ísland á ekki möguleika í danska liðið

Bent Nyegaard er þess fullviss að Danmörk vinni Ísland í leik liðanna á morgun í 16-liða úrslitum á HM. "Gott að fá Ísland í 16-liða úrslitum,“ segir einn helsti sérfræðingur Danmerkur um handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×