Handbolti

Guðjón Valur: Þessir strákar eru nánast eins og bræður mínir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, huggar Guðjón eftir leik.
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, huggar Guðjón eftir leik. vísir/valli
„Ég væri svo til í að gefa þér svar hvað væri að. Ef ég ætti það svar væri ég þjálfari hjá liði sem myndi ekki tapa neinum leik,“ sagði tilfinningaríkur landsliðsfyrirliði, Guðjón Valur Sigurðsson, eftir tapið gegn Króatíu í kvöld.

„Ég hef sjaldan upplifað aðra eins tómleikatilfinningu og svekkelsi eins og núna. Maður sér menn sem eru búnir að leggja hart að sér, standa lengi saman og upplifa margt gott og slæmt saman. Gert hópinn að því sem hann er. Sjá draumana fuðra upp. Það er alveg ofsalega erfitt.“

Sjá einnig: Snorri Steinn: Hefði verið falleg saga að enda þetta í Ríó

Það fór margt úrskeiðis í síðustu tveim leikjum en getur Guðjón fest fingur á hvað helst klikkaði?

„Við erum ekki nógu ákveðnir og fastir fyrir í vörninni sem gerir markvörðunum erfitt fyrir. Sóknin var vandamál fyrsta korterið í dag. Ég er mjög svekktur yfir því hvernig þessi leikur spilast. Ég væri svo til í að segja alls konar hluti en ég nenni ekki að festast í einhverjum klisjum. Mér hefur bara ekki liðið svona illa eftir leik lengi.“

Þrátt fyrir mikla reynslu lykilmanna í landsliðinu þá brást andlega hliðin augljóslega í kvöld.

„Það brást bara allt og við erum ekki á þeim stað sem við höfum verið að sýna að við getum verið á. Við náum ekki að halda standard nógu hátt og nógu lengi. Hverjum er um að kenna? Ég væri ofsalega til í að geta haft svör við því.“

Svekkelsið var mikið hjá fyrirliðanum í kvöld.vísir/valli
Sjá einnig: Aron: Mér leið illa á vellinum

Ólympíudraumur strákanna okkar dó einnig í kvöld og það særði sérstaklega reynsluboltana.

„Það er búin að vera mikil gulrót í öllum æfingum og því sem maður leggur á sig. Ég veit að liðið er gríðarlega svekkt með að missa af leikunum. Hvað verður núna? Það er svakalega efitt að spá og spekúlera í því núna.“

Guðjón Valur er ekkert á því að leggja landsliðsskóna á hilluna enda enn í toppformi og einn besti hornamaður heims.

„Ég hef aldrei skorast undan áskorun með landsliðinu. Ef að þjálfarinn telur sig hafa not fyrir mig þá er ég til staðar. Ef hann kýs að nota aðra menn þá er það hans val. Ég hef alltaf beðið um að vera dæmdur af mínum verkum en ekki nafninu mínu. Ég skorast að sjálfsögðu ekki undan að spila með landsliðinu,“ segir Guðjón en það skiptir hann miklu máli að spila fyrir landsliðið.

„Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Ég er ótrúlega stoltur af því að fá að spila fyrir íslenska landsliðið og vera í þessum hópi þó svo þetta hafi ekki gengið núna. Ég hef gengið í gegnum súrt og sætt með þessum strákum í liðinu og þetta eru nánast eins og bræður mínir. Þetta eru góðir strákar og ég myndi vaða eld og brennistein fyrir þá. Ég gjörsamlega dýrka og dá þá. Landsliðið hefur nánast verið mín önnur fjölskylda í ótrúlega langan tíma og mér þykir vænt um hana.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×