Handbolti

Guðjón Valur: Búinn að reyna við þennan í nokkur ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði 11 mörk um helgina.
Guðjón Valur skoraði 11 mörk um helgina. vísir/getty
„Tilfinningin er góð,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, nýbakaður Evrópumeistari með Barcelona, í stuttu samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi.

Þegar blaðamaður sló á þráðinn til landsliðsfyrirliðans var hann, ásamt félögum sínum, á leið heim til Barcelona frá Köln, þar sem úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handbolta fór fram.

Tókst í fimmtu tilraun

Þetta var fimmta árið í röð sem Guðjón kemst til Kölnar, með fjórða liðinu, en hann hafði áður komist í undanúrslitin með Rhein-Neckar Löwen, AG Köbenhavn og Kiel.

Frá 2011-2013 féllu lið landsliðsfyrirliðans út í undanúrslitunum en hann fór með Kiel í úrslitaleikinn í fyrra. Það var svo loks í ár sem takmarkið náðist.

„Maður er búinn að reyna við þennan í nokkur ár en nú tókst það,“ sagði Guðjón og bætti við að biðin eftir Meistaradeildartitlinum hefði ekki verið farin að leggjast þungt á hann.

Barcelona sló pólska liðið Vive Targi Kielce út í undanúrslitunum, 33-28. Börsungar voru með yfirhöndina nær allan leikinn. Katalóníuliðið leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 16-14, og skoraði svo fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks.

Þá kom mikill kraftur í Kielce-menn sem náðu að jafna leikinn. En á lokakaflanum skellti Danijel Saric í lás í marki Barcelona sem vann að lokum fimm marka sigur, 33-28. Guðjón Valur átti góðan leik í liði Börsunga og skoraði fimm mörk.

Börsungar hafa unnið Meistaradeildina níu sinnum.vísir/getty
Stórleikur Arons dugði ekki til

Í úrslitaleiknum í gær mætti Barcelona svo ungverska stórliðinu Veszprém sem sló Kiel út í seinni undanúrslitaleiknum.

Aron Pálmarsson fór á kostum í liði Kiel, gegn sínum verðandi samherjum í liði Veszprém, en íslenski landsliðsmaðurinn skoraði níu mörk í leiknum og átti auk þess nokkrar stoðsendingar á félaga sína.

Staðan var jöfn í hálfleik, 12-12, en frábær byrjun Ungverjanna í seinni hálfleik gerði útslagið. Þeir komust fljótlega í 18-14 og það bil náði Kiel ekki að brúa.

Veszprém vann að lokum fjögurra marka sigur, 31-27. Ekki tók betra við hjá lærisveinum Alfreðs í leiknum um 3. sætið sem þeir töpuðu 28-26 fyrir Kielce. Aron skoraði tvö mörk í leiknum.

Veszprém komst tvívegis yfir í byrjun úrslitaleiksins en það voru einu skiptin sem liðið var með forystuna í gær. Börsungar náðu fljótlega undirtökunum en Ungverjarnir voru þó aldrei langt undan.

Guðjón Valur var markahæstur Börsunga í úrslitaleiknum ásamt Nikola Karabatic. Þeir skoruðu báðir sex mörk.vísir/getty
Góður endasprettur skildi að

„Það var ekki við öðru að búast, Veszprém er með frábært lið og er erfitt við að eiga,“ sagði Guðjón Valur í samtali við Fréttablaðið í gær.

„Við erum einfaldlega ánægðir með að hafa unnið leikinn. Vörnin og markvarslan hjá okkur í seinni hálfleik var aðeins betri en hjá þeim og það skilaði nokkrum hraðaupphlaupum,“ sagði Guðjón ennfremur en hann skoraði sex mörk í úrslitaleiknum og var markahæstur í liði Barcelona ásamt Nikola Karabatic sem var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar.

Staðan var 14-10 í hálfleik, Barcelona í vil en Lazlo Nagý, fyrirliði Veszprém, minnkaði muninn í tvö mörk, 19-17, þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum. Þá gáfu Börsungar aftur í og unnu að lokum fimm marka sigur, 28-23. Þetta er í níunda sinn sem Barcelona vinnur Meistaradeildina.

Aðspurður hvort það yrði tekið á móti liðsmönnum Barcelona með pompi og prakt við heimkomuna sagði Guðjón: „Ég veit ekkert hvað tekur við og mér er eiginlega alveg sama. Ég elti bara liðið og við fögnum þessum áfanga sem við náðum,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson að lokum.


Tengdar fréttir

Níu mörk Arons dugðu ekki til

Kiel beið lægri hlut fyrir Veszprem, 31-27, í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta þar sem Aron skoraði 9 mörk fyrir Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×