Viðskipti innlent

Guðjón þarf ekki að víkja

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólíklegt má telja að aðalmeðferð í málinu fari fram fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári.
Ólíklegt má telja að aðalmeðferð í málinu fari fram fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. vísir/gva
Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari þarf ekki að víkja sæti í Aurum Holding-málinu. Guðjón kvað sjálfur upp úrskurður þess efnis í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hafði krafist þess að Guðjón viki í málinu vegna vanhæfis.

Í málinu er u þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Þeir voru sýknaðir í héraðsdómi en málinu var vísað aftur heim í héraðvegna vanhæfis eins héraðsdómara, Sverris Ólafssonar

Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. Verjendurnir telji hana rétta. Hann upplýsir að Sérstakur saksóknari hafi lýst því yfir í dómssal í morgun að hann ætlaði að hann ætlaði að taka sér tíma til að meta næstu skref. Hann á þess kost að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. Ekki náðist í Ólaf Þór við vinnslu fréttarinnar.

Guðjón mun í framhaldinu tilkynna meðdómara sína. Ljóst er að Sverrir Ólafsson verður ekki einn þeirra en ekki liggur fyrir hvort Arngrímur Ísberg sitji áfram. Þó er ljóst að öll aðalmeðferðin mun þurfa að fara fram á nýjan leik sem þýðir að tugir vitna þurfa að mæta aftur fyrir dóm enda verður nýr dómari í brúnni. 

Ákæruna má sjá hér að neðan.

Uppfært klukkan 13:10

Ekki kom fram skilmerkilega í fyrri útgáfu fréttarinnar að Guðjón St. hefði sjálfur kveðið upp úrskurðinn um hæfi sitt til að dæma í málinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×