Íslenski boltinn

Guðjón Baldvins þakkaði gulklæddum guði fyrir að bjarga sér í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Fannar Björgvinsson fagnar sigrinum í kvöld með strákunum í Stjörnuliðinu.
Hörður Fannar Björgvinsson fagnar sigrinum í kvöld með strákunum í Stjörnuliðinu. Mynd/Stöð 2 Sport
Guðjón Baldvinsson bjargaði Stjörnumönnum í kvöld þegar hann kom bikarleiknum á móti Ólafsvíkingum í framlengingu en það var annar Stjörnumaður sem bjargaði honum í vítakeppninni.

Guðjón Baldvinsson klikkaði nefnilega á fyrstu vítaspyrnu Stjörnunnar í vítakeppninni þegar Cristian Martinez varði frá honum og Ólafsvíkingar komust í 2-0 í vítakeppninni.

Þá kom markvörðurinn Hörður Fannar Björgvinsson til bjargar en Hörður Fannar var þarna að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu með Stjörnunni.

Hörður Fannar Björgvinsson var í markinu Stjörnumanna vegna þess að varamarkvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson er meiddur og aðalmarkvörðurinn Duwayne Kerr er upptekinn í undirbúningi Jamaíka fyrir Ameríkukeppnina.

„Þakka guði fyrir að bjarga mér og andlegu heilsunni í kvöld, hann var gulklæddur," skrifaði Guðjón Baldvinsson á Twitter-síðu sína í kvöld eins og sjá má hér fyrir neðan.

Hörður Fannar Björgvinsson varði fyrst frá Pape Mamadou Faye og svo frá Alfreð Már Hjaltalín í 3. umferð í bráðabana.  Það er hægt að sjá alla vítakeppnina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×