Íslenski boltinn

Guðjón: Viljum rífa okkur í gang

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Baldvinsson.
Guðjón Baldvinsson.
Eftir frábæra byrjun í Pepsi-deild karla hefur gefið á bátinn hjá Stjörnumönnum. Þeir hafa ekki unnið fjóra síðustu leiki sína og tapað þrem af þessum leikjum.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Stjörnumönnum og sérstaklega söknuðu Stjörnumenn framherjans Guðjóns Baldvinssonar sem þó snéri til baka í síðasta leik er liðið gerði jafntefli gegn ÍA.

Þar skoraði Guðjón og hann verður með Stjörnuliðinu á morgun er það tekur á móti Shamrock Rovers í Evrópudeildinni.

„Við erum búnir að bíða eftir þessum leik lengi og erum fullir tilhlökkunar. Eftir slakt gengi í deildinni viljum við nota tækifærið og rífa okkur í gang,“ segir Guðjón en Stjarnan veit mikið um andstæðing sinn frá Írlandi.

„Við höfum greint þeirra veikleika og styrkleika mjög vel og ég hef fulla trú á því að við komum vel undirbúnir á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×