Fótbolti

Guðbjörg: Fríða getur gleymt því að vera fyrst til að skora hjá mér

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðbjörg Gunnarsdóttir er ekki enn búin að fá á sig mark í norsku úrvalsdeildinni.
Guðbjörg Gunnarsdóttir er ekki enn búin að fá á sig mark í norsku úrvalsdeildinni. vísir/AFP
„Það bjuggust allir við því að sóknarleikurinn yrði okkar aðalsmerki,“ segir Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, við Fréttablaðið, um lið sitt Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sóknarleikurinn hefur aðeins „brugðist“, en liðið er bara búið að skora fimm mörk í fyrstu fjórum leikjunum.

Það kemur þó ekki að sök því Guðbjörg er búin að halda hreinu í öllum leikjunum fjórum og eru meistararnir því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar.

„Við erum meira með boltann í öllum leikjunum en náum ekki að skora nóg. En eitt mark er nóg á meðan við fáum ekki á okkur mark,“ segir Guðbjörg.

Hún kom á miðju sumri til Lilleström í fyrra en komst aldrei í byrjunarliðið. „Ég fór í aðgerð á hné og var ekki leikfær fyrr en í byrjun október. Þá voru svo fáir leikir eftir að það var engin ástæða til að skipta út markverðinum. En það var ógeðslega svekkjandi að fá ekki að spila,“ segir Guðbjörg.

Einn af landsliðsmarkvörðum Noregs stóð vaktina í marki LSK í fyrra en sá missti byrjunarliðssætið til Guðbjargar í vetur.

„Ég er í bullandi samkeppni við þessa norsku sem er í baráttunni um að komast með Noregi á HM. Ég er búin að spila alla leikina frá og með mars og hlýt nú að vera langt komin með að tryggja mér byrjunarliðssætið endanlega eftir að hafa haldið hreinu í fyrstu fjórum leikjunum,“ segir Guðbjörg.

Næsti leikur LSK er Íslendingaslagur á móti Avaldsnes þar sem markavélin Hólmfríður Magnúsdóttir er á mála.

„Hún verður ekki sú fyrsta sem skorar hjá mér. Það er alveg klárt. Hún sagði á Facebook að hún ætlaði að „klobba“ mig. Hún getur náttúrlega gleymt því,“ segir Guðbjörg sem nýtur lífins hjá Lilleström enda dálkurinn yfir mörk fengin á sig fastur í núlli. „Það er gott fyrir egóið en maður verður bara að halda áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×