Fótbolti

Guðbjörg: Finnst eins og Sviss sé búið að toppa

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Guðbjörg Gunnarsdóttir spjallar við fréttamenn fyrir æfingu landsliðsins í dag.
Guðbjörg Gunnarsdóttir spjallar við fréttamenn fyrir æfingu landsliðsins í dag. vísir/tom
„Að sjálfsögðu er ég byrjuð að undirbúa mig,“ segir Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska landsliðsins, en stelpurnar okkar mæta sterku liði Sviss á Tjarnarhæðinni í Doetinchem á laugardaginn.

„Það er langt síðan undirbúningur hófst en maður er svo einfaldur sem leikmaður að allur fókus var bara settur á Frakkland. Ég fékk svo klippur frá Óla markvarðaþjálfara í gær um Sviss og er nú að undirbúa mig fyrir það.“

Svissneska liðið var það fyrsta sem stelpurnar mættu undir stjórn Freys Alexanderssonar en sá leikur fór illa. Sviss vann 2-0 sem var síst of stór sigur og þegar liðin mættust aftur í undankeppni HM 2015 kom annar svissneskur sigur.

„Við eigum möguleika í öllum fótboltaleikjum. Við mættum geggjuðu liði Frakklands í fyrradag en sýndum að við gáum fengið stig,“ segir Guðbjörg.

„Sviss er búið að vera á geggjaðri uppleið síðustu ár en mér finnst líta út eins og þær séu búnar að toppa. Síðustu leikir hafa ekkert verið frábærir hjá þeim. Við höfum séð ákveðna veikleika í þeirra liði sem við verðum að reyna að nýta okkur.“

Sviss er með frábært skyndisóknarlið þannig íslensku stelpurnar verða að passa sig með boltann þegar þær færa sig framar á völlinn.

„Við lærðum af síðustu leikjum á móti þeim. Við vorum að fá á okkur mörk þegar við vorum ekki með skipulagðan varnarleik. Nánast öll mörin sem þær skora eru úr skyndisóknum. Þetta er eitt besta skyndisóknarlið í heimi,“ segir markvörðurinn.

„Það er samt ekki sama flæði í spilinu hjá þeim þegar við verjumst allar fyrir aftan boltann. Við þurfum síðan að passa vel upp á boltann þegar við færum okkur framar og ljúka sóknum með skoti.“

Margir fjölskyldumeðlimir Guðbjargar eru mættir til Hollands til að fylgjast með sinni konu og stelpunum okkar. Stuðningurinn er mikilvægur.

„Bæði nánasta fjölskylda mín og stórfjölskyldan eru mætt sem og vinir og kunningjar. Þannig er það hjá flestum leikmönnum. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað margir eru með okkur og hvað það er mikil stemning í stúkunni,“ segir Guðbjörg.

„Eins og síðustu fimm mínúturnar þegar við vorum búnar meira að segja að fá á okkur mark var allt vitlaust. Það gefur manni ótrúlega mikið adrenalín. Maður heldur kannski að maður sé þreyttur en svo heyrir maður svona lætir og það gefur manni mörg prósent extra,“ segir Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á Facebook og Twitter.


Tengdar fréttir

Blaðamenn hópuðust í kringum mömmuna

Framherjinn Harpa Þorsteinsdóttir segir það ekki hafa verið planað að mæta með fimm mánaða son sinn í viðtöl eftir tapið gegn Frökkum.

Sara Björk stendur nú ein eftir

Fyrirliði kvennalandsliðsins í fótbolta, er nú eini leikmaður liðsins sem hefur spilað alla leiki stelpnanna okkar á stórmóti. Hún var efnilegur nýliði fyrir átta árum en er nú fyrirliði og besti leikmaður Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×