Glamour

Gucci gefur hálfa milljón bandaríkjadala

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Alessandro Michele, listrænn stjórnandi Gucci, segir styrk krakkana sem barist hafa fyrir breytingum á byssulöggjöfinni í Bandaríkjunum haft mikil áhrif á sig. Þess vegna hefur Gucci ákveðið að gefa hálfa milljón bandaríkjadala, eða um fimmtíu-milljónir íslenskra króna til styrktar mótmælagöngunni sem verður í Washington í mars, sem ber nafnið ,,March for Our Lives."

,,Við stöndum með March for Our Lives og þeim óhræddu nemendum sem krefjast þess að líf þeirra og öryggi séu í fyrirrúmi," segir ítalska tískuhúsið í yfirlýsingu um málið.

Það er spurning hvort að fleiri fyrirtæki og jafnvel tískuhús taki þetta til fyrirmyndar.






×