Enski boltinn

Guardiola vill kaupa annan varnarmann

Elías Orri Njarðarson skrifar
Guardiola þarf að styrkja vörnina í liðinu
Guardiola þarf að styrkja vörnina í liðinu visir/getty
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City á Englandi, hefur verið duglegur á leikmannamarkaðnum undanfarna daga en til City eru m.a. komnir: Kyle Walker, Danilo og Benjamin Mendy. Allir fyrir mjög háar upphæðir.

Spænski stjórinn sagði í samtali við Sky sports að hann væri ánægður með leikmannahóp sinn en myndi samt vilja bæta leikmanni við hópinn áður en að félagsskiptaglugginn á Englandi loki.

Guardiola segist vilja styrkja miðja vörnina í liðinu en þeir sem hafa skipt miðvarðarhlutverkinu á milli sín eru þeir John Stones, Vincent Kompany og Nicolas Otamendi. Fróðlegt verður því að sjá hvaða miðvörð Guardiola nær að fá til sín en svo virðist sem að kaupverðið skipti engu máli fyrir félagið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×