Fótbolti

Guardiola segist vera eins og kona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola. Vísir/Getty
Pep Guardiola er enn þjálfari þýska stórliðsins Bayern München og hann er orðinn svolítið þreyttur á því að vera spurður aftur og aftur út í Manchester City.

Guardiola mun hætta með lið Bayern München í sumar og færa sig yfir til Englands þar sem hann tekur við liði Manchester City af Manuel Pellegrini. Hann hafnaði nýjum samningi við þýska félagið og tilkynnti í desember að hann væri á förum.

Hinn 45 ára gamli Pep Guardiola er búinn að ganga frá þriggja ára samningi við enska félagið en Pellegrini á samt enn möguleika á því að vinna fernuna með City á þessari leiktíð.

Guardiola hefur þrátt fyrir ungan aldur og ekki alltof langan feril unnið þegar 19 titla sem þjálfari Barcelona og Bayern München.

Guardiola getur sjálfur enn unnið þrennuna með Bayern München og getur enn mætt verðandi lærisveinum sínum í Manchester City í Meistaradeildinni.

Guardiola er samt orðinn frekar þreyttur á spurningum um Manchester City og þá sérstaklega þegar menn forvitnast um hvort að hann geti yfir höfuð einbeitt sér að þjálfun Bayern.

„Yrði þetta erfitt. Ég er eins og kona því ég get alveg hugsað um tvo hluti í einu og haft stjórn á báðum aðstæðum. Ég hef mikla hæfileika í það," sagði Pep Guardiola með smá kaldhæðni við blaðmenn á fundi fyrir leik helgarinnar.  BBC segir frá.

„Ég get ekki sagt eitthvað nýtt um þetta mál í hverri viku. Það eru ennþá fjórir mánuðir í þetta og þetta er ekki vandamál í mínum huga. Blöðin geta haldið áfram að ráðast á mig en ég held bara áfram mínu starfi," sagði Guardiola.

„Þjálfurum er ekki sýnd mikil virðing þessa dagana. Það er allstaðar svoleiðis, í Madrid, í Barcelona, í Þýskalandi og á Englandi. Það eru dagblöð, sem menn bera virðingu fyrir, sem hafa ekki spurt mig eina spurningu um fótbolta á þessum þremur árum," sagði Guardiola.

„Þetta fylgir víst starfinu. Ég skil það ekki en ég lifi með því," sagði Guardiola.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×