Enski boltinn

Guardiola hefur áhuga á að stýra Manchester United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guardiola á Old Trafford 4. maí 2011.
Guardiola á Old Trafford 4. maí 2011. Vísir/Getty
Í nýrri bók um fyrsta tímabil Pep Guardiola við stjórnvölinn hjá Bayern München, Pep Confidential: The Inside Story of Pep Guardiola's First Season at Bayern München, kemur fram að Spánverjinn hafi áhuga á að stýra Manchester United einn daginn.

Guardiola var ásamt Manuel Estiarte, aðstoðarmanni sínum og vini, á meðal áhorfenda á Old Trafford þegar United vann öruggan sigur á Schalke 04 í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu vorið 2011 og hreifst af andrúmsloftinu á vellinum.

„Þetta var 4. maí 2011, þeir sátu saman í stúkunni á Old Trafford og horfðu á lið Sir Alex Ferguson vinna Schalke 4-1,“ segir í bókinni.

„Pep sneri sér enn einu sinni að Estiarte og sagði: „Ég er hrifinn að andrúmsloftinu hér. Ég gæti vel hugsað mér að þjálfa hér einn daginn.“ Pep hefur alltaf dást af, og nánast borið lotningu, fyrir stærstu liðum og leikmönnum Evrópu.“

Guardiola var þegar búinn að semja við Bayern München þegar Ferguson settist í helgan stein vorið 2013, en Spánverjinn var einnig orðaður við stjórastöðuna hjá United þegar David Moyes var rekinn í apríl á þessu ári.

Í bókinni fullyrðir höfundurinn, Marti Perarnau, að bæði Manchester City og Chelsea hafi gert ítrekaðar tilraunir til að ráða Guardiola veturinn 2012-13, þegar Spánverjinn tók sér frí frá þjálfun eftir að hafa náð frábærum árangri með Barcelona. Ensku liðunum tókst þó ekki að freista Guardiola sem samdi við Bayern í desember 2012.

Bók Perarnau fer í sölu í dag, en við ritun hennar fékk hann fullt aðgengi að vini sínum, Guardiola, og fékk að skyggnast bak við tjöldin hjá þýska stórveldinu.

Bayern vann bæði deild og bikar á fyrsta tímabili Guardiola við stjórnvölinn, en þegar þessi orð eru skrifuð situr Bayern í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir sjö umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×