Forráðamenn spænska fótboltaliðsins Barcelona hafa boðað til blaðamannafundar í hádeginu þar sem tilkynnt verður að Pep Guardiola sé hættur sem þjálfari liðsins.
GETTY IMAGES / NORDIC STAR
Forráðamenn spænska fótboltaliðsins Barcelona hafa boðað til blaðamannafundar í hádeginu þar sem tilkynnt verður að Pep Guardiola sé hættur sem þjálfari liðsins. Hinn 41 árs gamli þjálfari hefur samkvæmt heimildum breskra netmiðla verið í viðræðum við stjórn félagsins um starfslok sín en samningur hans rennur út i lok leiktíðar. Sömu heimildir greina frá því að Guardiola hafi tilkynnt leikmönnum um ákvörðun sína á æfingu liðsins í morgun.
Ákvörðun hins 41 árs gamla Spánverja kemur flestum á óvart en talið er að Guardiola vilji taka sér frí frá þjálfun. Gríðarleg álag hefur fylgt þessu starfi en Barcelona hefur unnið til 13 titla undir stjórn hans frá árinu 2008.
Undir stjórn Guardiola hefur Barcelona fagnað Spánarmeistaratitlinum þrívegis og liðið hefur tvívegis unnið Meistaradeild Evrópu. Alls hefur liðið unnið 13 titla í þeim 16 keppnum þar sem Guardiola hefur komið við sögu sem þjálfari liðsins.
Það eru án efa mörg lið sem hafa áhuga á að fá Guardiola til starfa. Að sjálfsögðu hefur nafn Chelsea á Englandi komið þar við sögu ásamt öðrum enskum liðum á borð við Arsenal, Liverpool og Manchester United.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að það sé allt eins líklegt að Guardiola muni taka sér frí frá þjálfun í einhvern tíma.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Það vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar Roberto Mancini, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, keypti heilsíðuauglýsingu í Manchester Evening News þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum félag...
Meira
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Norrköping í dag er hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Halmstad á útivelli.
Meira
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, virðist vera búinn að sætta sig við að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao sé á förum frá spænska félaginu. Argentínski þjálfarinn ætlar í það minnsta ekki a...
Meira
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarúrslitaleiknum á Spáni í síðustu viku.
Meira
Franska blaðið L'Equipe staðhæfir í dag að AS Monaco ætli sér að bjóða 5,5 milljarða króna, 30 milljónir punda, í belgíska varnarmanninn Vincent Kompany, fyrirliða Manchester City.
Meira
Enska knattspyrnufélagið Man. City og bandaríska hafnaboltafélagið New York Yankees hafa tekið höndum saman og stofnað knattspyrnufélag í New York.
Meira
Emmanuel Eboue er afar sérstakur knattspyrnumaður. Hann lék lengi með Arsenal en er nú á mála hjá Galatasarey í Tryklandi. Liðið var Tyrkneskur meistari um helgina og fagnaði Eboue mjög vel.
Meira
Svíinn Zlatan Ibrahimovic hefur verið valinn leikmaður ársins í frönsku Ligue 1 deildinni. Þessi 31 árs leikmaður skoraði 29 mörk í deildinni í vetur og leiddi liðið til síns fyrsta sigur í deildinni ...
Meira
Íslendingaliðið Avaldsnes tapaði í dag 1-2 gegn Røa í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Fjórir Íslendingar leika með Avaldsnes en það eru þær. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir, M...
Meira
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Heerenveen þegar liðið tapaði 2-1 gegn Utrecht í síðari leik liðanna í umspili um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Meira
Anderlecht varð í dag belgískur meistari í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli gegn Ólafi Inga Skúlasyni og félögum í Zulte Varegem í lokaleik úrslitakeppni efstu liða deildarinnar.
Meira
Valur og ÍBV gerðu 3-3 jafntefli í 3. umferð Pepsi-deildar kvenna í frábærum fótboltaleik. Hér má sjá helstu atvik úr þeim leik sem enginn verður svikinn af.
Meira
Varaforseti brasilíska knattspyrnuliðsins Santos, Odilio Rodrigues, hefur staðfest að félagið hafi hafnað tilboði Barcelona í stórstjörnu sína, Neymar.
Meira