Fótbolti

Guardiola er harður húsbóndi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guardiola í siglingu ásamt lukkudýrinu Berni.
Guardiola í siglingu ásamt lukkudýrinu Berni. Vísir/Getty
Pep Guardiola stefnir að því að ná enn betri árangri með Bayern München á þessari leiktíð en þeirri síðustu. Til þess hefur Spánverjinn sett strangar reglur fyrir leikmenn Bayern að fara eftir.

Þær kveða m.a. á stundvísi, snyrtimennsku og líkamlegt form. Fjársektir fylgja brotum á þessum reglum, en leikmenn fá 250 evra (38.950 íslenskra króna) sekt fyrir fyrsta brot og svo hækkar sektin um 250 evrur fyrir hvert brot þar á eftir. Philipp Lahn, fyrirliði Bayern, sér um að innheimta sektirnar.

Leikmenn geta m.a. verið sektaðir fyrir að vera yfir kjörþyngd, sleppa því að ganga frá óhreinum fötum, svara í farsíma á fyrstu hæð Sabener Strasse (æfingaaðstöðu Bayern) og fyrir að borða ekki innan klukkutíma eftir æfingar eða leiki.

Bayern vann bæði þýsku deildina og bikarkeppnina á síðustu leiktíð, en þýska stórveldið tapaði 5-0 samanlagt fyrir Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Bayern mætir Schalke 04 í öðrum leik sínum í þýsku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur.


Tengdar fréttir

Badstuber kominn aftur út á völl

Þýski varnarmaðurinn Holger Badstuber lék sinn fyrsta leik frá árinu 2012 í gær þegar hann var í vörn Bayern Munchen sem lagði Wolfsburg 2-1 í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Guardiola: Þurfum að bregðast við meiðslum Martínez

Pep Guardiola vonast til þess að finna leikmann í stað Javi Martínez áður en félagsskiptaglugginn lokar. Martínez sleit krossbönd í leiknum um þýska Ofurbikarinn á dögunum og missir af næstkomandi tímabili.

Benatia genginn til liðs við Bayern Munchen

Bayern Munchen gekk í dag frá kaupunum á marokkóska varnarmanninum Mehdi Benatia frá Roma en honum er ætlað að fylla skarð Javi Martinez sem sleit krossbönd á dögunum.

Kroos seldur þvert á óskir Guardiola

Í nýrri ævisögu Pep Guardiola sem kemur út í haust kemur fram að þegar félagið seldi Toni Kroos var það gert þrátt fyrir að hafa lofað Spánverjanum að hann yrði aldrei seldur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×