Enski boltinn

Guardiola: Þetta er úrslitaleikur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guardiola ásamt strákunum sínum.
Guardiola ásamt strákunum sínum. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Man. City, tekur leikinn gegn nágrönnunum í Man. Utd í kvöld mjög alvarlega. Hann lítur á hann sem úrslitaleik.

Guardiola mun gera breytingar á sínu liði en hann segir leikmenn vera þreytta. Liðið er búið að spila fimm leiki í röð án sigurs en það hefur aldrei áður gerst á ferli þjálfarans.

„Það eru allir sammála um að þetta er ekki stærsta keppnin en við ætlum okkur að vinna. Þetta er úrslitaleikur,“ sagði Spánverjinn.

„Ég veit ekki út á hvað mitt starf gengur ef ég er farinn að gera upp á milli leikja. Næsti leikur er alltaf mikilvægasti leikurinn.“

Leikurinn hefst klukkan 19.00 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×