Golf

GSÍ biður Björgvin og Kára afsökunar

Björgvin Þorsteinsson.
Björgvin Þorsteinsson. vísir/GVA
Golfsamband Íslands, GSÍ, sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna máls tveggja kylfinga sem hafa verið talsvert í umræðunni síðustu mánuði.

Fyrst fékk Kári Hinriksson ekki undanþágu til þess að nota golfbíl í móti á Eimskipsmótaröðinni. Kári var í krabbameinsmeðferð og óskaði því eftir undanþágunni.

Sexfaldi Íslandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson fór fram á sömu undanþágu á Íslandsmótinu um síðustu helgi en hans beiðni var líka synjað. Björgvin var í krabbameinsmeðferð rétt eins og Kári. Hann er 62 ára gamall og var að keppa á Íslandsmótinu 52. árið í röð. Hann þurfti að hætta keppni eftir sex holur.

Þessar synjanir hafa verið afar umdeildar út í samfélaginu svo ekki sé nú meira sagt.

Sjá einnig: Sexföldum Íslandsmeistara meinað að nota golfbíl

Í yfirlýsingu GSÍ í dag kemur fram að reglur um notkun golfbíla séu ekki nógu skýrar. Reglurnar verða því teknar til endurskoðunar til að koma í veg fyrir mögulegt ósamræmi við túlkun þeirra í framtíðinni.

GSÍ hefur beðið þá Björgvin og Kára afsökunar á þeim afleiðingum sem þessar óskýru reglur höfðu í för með sér.

Yfirlýsing GSÍ:

Í aðdraganda Íslandsmótsins í golfi, sem nýverið fór fram á Akranesi, óskaði Björgvin Þorsteinsson, sexfaldur Íslandsmeistari, eftir heimild mótsstjórnar til að fá að notast við golfbíl í mótinu vegna veikinda. Mótsstjórn synjaði honum um heimildina þar sem notkun golfbíla hefur ekki verið heimiluð í keppni á efsta keppnisstigi hjá golfsambandinu.

Sama afstaða var tekin á golfmóti á stigamótaröð golfsambandsins í júní sl. þegar öðrum keppanda, Kára Hinrikssyni, var synjað um heimild til notkunar golfbíls á sömu forsendum. Í keppnisskilmálum Íslandsmótsins er gert ráð fyrir því að veita megi keppendum heimild til notkunar golfbíla.

Undantekningarskilyrðin eru þó ekki tiltekin sérstaklega og því undir mótsstjórn hvers móts komið hvort hún samþykkir beiðnir eða hafnar þeim. Beiðnum kylfinga um notkun golfbíla á efsta keppnisstigi hefur ávallt verið synjað þótt þær hafi stöku sinnum verið samþykktar í öðrum mótum á vegum golfsambandsins.

Þar sem reglur um notkun golfbíla eru ekki skýrari en raun ber vitni telur Golfsamband Íslands rétt að taka þær til endurskoðunar svo koma megi í veg fyrir hugsanlegt ósamræmi við túlkun þeirra. Reglur, bæði fyrir golfmót og almennar reglur golfíþróttarinnar, eiga að vera skýrar og afdráttarlausar enda fela þær í sér leiðbeiningar fyrir mótsstjórnir, keppendur og almenna iðkendur golfíþróttarinnar.

Golfsamband Íslands hefur beðið framangreinda kylfinga afsökunar á þeim afleiðingum sem þessar óskýru reglur höfðu í för með sér.

 

Reykjavík, 28. júlí 2015.

Haukur Örn Birgisson

Forseti Golfsambands Íslands


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×