Innlent

Grunur um ölvunarakstur eftir umferðaróhapp við Höfðabakka

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan vaktaði borgina í nótt.
Lögreglan vaktaði borgina í nótt. Vísir/Vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðaróhapp á Höfðabakka rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði bifreið verið ekið út af veginum. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

Um klukkan þrjú í nótt var ökumaður stöðvaður í Breiðholti grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við nánari skoðun reyndist ökumaðurinn í akstursbanni vegna fyrri afskipta lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×