Innlent

Grunur um nauðgun: Maðurinn farinn úr landi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. vísir/stefán
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar meinta nauðgun á Hótel Plaza við Ingólfstorg aðfaranótt mánudags. Lögreglunni barst tilkynning vegna málsins fyrir hádegi í gær og voru teknar skýrslur af fimm manns í tengslum við málið.

Kristján Ingi Kristjánsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir málið á frumstigi, í fullri rannsókn en grunur leiki á um að maður hafi nauðgað konu.

Samkvæmt heimildum Vísis var hinn grunaði farinn af landi brott þegar lögregla fékk veður af málinu. Kristján Ingi vildi ekki staðfesta það í samtali við Vísi. Í frétt Mbl.is í gær kom fram að enginn hefði verið handtekinn vegna málsins. Er sú staða óbreytt að sögn Kristjáns Inga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×