Innlent

Grunur leikur á um að átt hafi verið við öryggisbúnað kranans

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kraninn í Hafnarstrætinu um klukkan korter í tólf í morgun.
Kraninn í Hafnarstrætinu um klukkan korter í tólf í morgun. Vísir/BS
Grunur leikur á um að átt hafi verið við öryggisbúnað kranans sem féll á hús í byggingu við Hafnarstræti og yfir á planið fyrir framans Bæjarins besta í miðborg Reykjavíkur í dag. 

Þetta staðfestir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, í samtali við Vísi.

„Það leikur grunur á um átt hafi verið við öryggisbúnað þannig að hann myndi ekki slá út þegar byrðin væri orðin of þung,“ segir Eyjólfur.

Sjá einnig: Sá sem var næstur í röðinni á Bæjarins bestu æpti á alla að koma sér í burtu



Kraninn féll á planið við Bæjarins bestuVísir/GVA
Öryggisbúnaðurinn virkar þannig að hann á að slá út þegar verið er að lyfta of þungu hlassi og þannig koma í veg fyrir að hægt sé að lyfta hlassinu.

„Það er þekkt að menn séu að reyna að svindla á þessu og lyfta meiru en kraninn lyftir. Í þessu tilviki leikur grunur á um að slíkt hafi átt sér stað og lögreglan er að rannsaka það,“ segir Eyjólfur sem segir að málið sé litið mjög alvarlegum augum.

Mikil mildi þykir að ekki hafi orðið slys á fólki og sagði Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem var á vettvangi, í samtali við Vísi fyrr í dag að það væri með ólíkindum að enginn hafi slasast.

Sjá einnig: Algjört sjokk, grétu og hringdu á lögregluna

Kraninn féll yfir á planið fyrir framan Bæjarins bestu þar sem vanalega er talsvert að fólki að bíða í röð eftir pylsunum frægu. Sem betur fer virðist þó hafa færri verið röð en vanalega.

Sá sem næstur var í röðinni byrjaði að vara alla við þegar vart varð við það að kraninn væri að fara á hliðina og æpti á fólk að koma sér í burtu.

Lögregla og Vinnueftirlitið fara með rannsókn málsins.


Tengdar fréttir

Algjört sjokk, grétu og hringdu á lögregluna

Vinkonurnar Bryndís Arna Bridde og Tinna Marín Sigurðardóttir sátu á bekk við Bæjarins Beztu í miðbæ Reykjavíkur þegar krani féll á planið á tólfta tímanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×