Innlent

Grunur leikur á að verksmiðja á Akureyri hafi framleitt lyfjablöndu til lækninga án tilskilinna leyfa

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Umrædd verksmiðja er á Akureyri.
Umrædd verksmiðja er á Akureyri. vísir/pjetur

Grunur leikur á að fyrirtæki sem rekur nokkurs konar efnaverksmiðju á Akureyri hafi brotið lög um matvæli og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir en húsleit var gerð í verksmiðjunni í gær. Samkvæmt heimildum RÚV heitir fyrirtækið sem um ræðir Gæðafóður en þetta herma heimildir Vísis einnig. Enginn var handtekinn vegna málsins en það er nú í rannsókn.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að hald hafi verið lagt á nokkra tugi lítra af natríumklóríði, minniháttar magn af sítrónusýru og lyfjaglös undir vökva í verksmiðjunni. Var húsleitin gerð í kjölfar þess að kæra barst um málið frá Heilbrigðsieftirliti Norðurlands þess efnis að verið væri að framleiða lyfjablöndu í húsnæðinu án tilskilinna leyfa.

Gunnar Jóhannsson, lögreglumaður hjá lögreglunni á Akureyri, segir að það sé meðal annars lögbrot að framleiða lyf án þess að hafa til þess tilskilin leyfi, til að mynda frá heilbrigðiseftirlitinu.

Lyfjablandan sem verið var að framleiða í verksmiðjunni kallast MMS, að því er fram kemur í frétt Stundarinnar. Árið 2010 varaði landlæknisembættið við þessari lyfjablöndu sem kölluð hefur verið „kraftaverkalausn.“ Í tilkynningu frá embættinu á sínum tíma kom fram að blandan geti valdið „alvarlegum veikindum og jafnvel dauða.

Í þessari lausn er 28% natríum klórít (NaClO2 ) sem er ætlað að lækna marga sjúkdóma, allt frá alnæmi til berkla. Engin vísindaleg gögn liggja fyrir sem styðja notkun þessarar lausnar við sjúkdómum. Natríum klórít er eitur sem valdið getur metrauðablæði (methemoglobulinemia), skemmdum á rauðum blóðkornum og nýrnabilun.

Eindregið er varað við notkun þessarar kraftaverkalausnar. Mikilvægt er að tilfelli þar sem grunur leikur á eitrun af völdum MMS séu tilkynnt til yfirvalda.“

Á vefsíðu Gæðafóðurs er því haldið fram að lyfjablandan geti meðal annars reynst vel á almennar bólgur, vefja- og liðagigt, malaríu, HIV og lifrarbólgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×