Erlent

Grunuð um að myrða Kim Jong-nam: Hélt hún væri að taka þátt í sjónvarpshrekk

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kim Jong-nam hneig niður á flugvellinum á mánudag og var fyrst fluttur á heilsugæslustöð flugvallarins. Hann lést svo á leiðinni á sjúkrahús.
Kim Jong-nam hneig niður á flugvellinum á mánudag og var fyrst fluttur á heilsugæslustöð flugvallarins. Hann lést svo á leiðinni á sjúkrahús. vísir/epa
Indónesísk kona sem handtekin var í vikunni, grunuð um að myrða Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, var talið trú um að hún væri að taka þátt í grínþætti í sjónvarpi með því að hrekkja fólk. „Hrekkurinn“ fór úr böndunum þar sem hann endaði með morði á flugvelli í Kuala Lumpur í Malasíu.

Þetta kemur fram í umfjöllun Guardian um málið og er haft eftir lögreglustjóranum í Indónesíu, Tito Karnavian, sem kveðst hafa fengið þessar upplýsingar frá yfirvöldum í Malasíu.

Konan heitir Siti Aisyah og er 25 ára gömul. Karnavian segir að hún og önnur kona hafi fengið greitt fyrir að hrekkja menn með því að sannfæra þá um að loka augunum og spreyja þá svo með vatni.

„Þetta var gert þrisvar til fjórum sinnum og þær fengu nokkra dollara fyrir. Í spreyinu fyrir seinasta skotspón þeirra, Kim Jong-nam, voru greinilega eiturefni en hún vissi ekki af því að þetta var morð af hálfu erlendra aðila,“ segir Karnavian.

Fór til Malasíu til að vinna fyrir sér

Kim Jong-nam hneig niður á flugvellinum á mánudag og var fyrst fluttur á heilsugæslustöð flugvallarins. Hann lést svo á leiðinni á sjúkrahús.

Fjölskylda konunnar er miður sín vegna málsins og lýsa henni sem móður sem hafði ferðast til Malasíu til að vinna. Síðdegis í gær var 26 ára gamall kærasti konunnar einnig handtekinn og þá er önnur kona líka í haldi lögreglu, grunuð um morðið. Lögreglan leitar enn að fleiri aðilum sem kunna að tengjast morðinu.

Yfirlýsing lögreglustjórans í Indónesíu, sem byggð er á upplýsingum sem ekki hafa fengist staðfestar að því er segir á vef Guardian, koma í kjölfar diplómatískrar deilu Norður-Kóreu og Malasíu varðandi það hvað eigi að gera við líkið af Kim Jong-nam.

„Yfirvöld í Malasíu gerðu krufningu án okkar leyfis eða vitneskju og við afneitum öllum niðurstöðum slíkrar krufningar,“ sagði í yfirlýsingu sendiherra Norður-Kóreu í Malasíu.

Lögreglan í Kuala Lumpur sagði í dag að hún muni aðeins verða við beiðni Norður-Kóreu um að fá líkið ef þess er krafist af ættingja eða þegar komið verður með DNA-sýni. 

X


Tengdar fréttir

Uppreisnargjarni glaumgosinn Kim Jong-nam

Kim Jong-nam var vafalaust ætlað leiðtogahlutverki í Norður-Kóreu. Hann var hins vegar ráðinn af dögum af útsendurum Norður-Kóreustjórnar fyrr í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×