Innlent

Grunaður um líkamsárás á þorrablóti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn er grunaður um líkamsárás á þorrablóti í Mosfellsbæ.
Maðurinn er grunaður um líkamsárás á þorrablóti í Mosfellsbæ. vísir/pjetur
Um klukkan þrjú í nótt handtók lögreglan mann á þorrablóti í Mosfellsbæ en hann er grunaður um líkamsárás. Var maðurinn færður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Þá var tilkynnt um eld í íbúð í Kópavogi um níuleytið en kviknaði hafði í olíu í potti. Slökkvistarf gekk greiðlega en mikill reykur var í íbúðinni.

Skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt var svo tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Skipholti. Var rúða brotin í hurð, farið inn og peningum stolið úr sjóðsvél.

Liðna nótt var svo nokkuð um það að ökumenn væru undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Alls voru ellefu ökumenn stoppaðir grunaðir um akstur undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×