Innlent

Grunaður ofbeldismaður kominn aftur heim til Íslands

Benedikt Bóas skrifar
Maðurinn sem grunaður er um að hafa gengið í skrokk á kærustu sinni í Texas er með nokkur mál á borðum lögreglunnar.
Maðurinn sem grunaður er um að hafa gengið í skrokk á kærustu sinni í Texas er með nokkur mál á borðum lögreglunnar. NordicPhots/Getty
Dómstóll í Austin í Texas mun taka fyrir mál Íslendingsins sem handtekinn var í síðustu viku, fyrir ofbeldi gegn unnustu sinni, á næstu vikum. Hinn grunaði er kominn til Íslands eins og fórnarlambið.

Sú er varð fyrir ofbeldi mannsins á Four Seasons hótelinu í borginni segir í samtali við Fréttablaðið manninn hafa verið drukkinn þegar atvikið átti sér stað. „Það ætlar sér enginn að kynnast manneskju sem lemur konur. Það ætlar sér enginn að vera í þessari stöðu. En þetta er erfitt fyrir alla og sérstaklega hann því hann er lasinn og þarf fyrst og fremst að fá hjálp,“ segir hún. Að öðrum kosti vildi hún ekki tjá sig.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru mál á hendur manninum til skoðunar hjá rannsóknardeildinni. Málin eru enn til meðferðar og ekki búið að ljúka þeim.

Fyrrverandi sambýliskona hans til 17 ára lýsti ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hans hálfu í blaðinu í gær. Þar sagði hún manninn hafa margoft gengið í skrokk á henni, yfirleitt fyrir framan börnin þeirra, og hótað henni meðal annars með hníf.

Hún lýsti því að hún hefði margoft hringt á lögregluna og beðið um aðstoð en kærurnar hafi orðið fáar vegna meðvirkni og ótta við hann. Þá hafi hún logið til um áverkana þegar hún leitaði aðstoðar læknis á heilsugæslu eða fjölskylda eða vinir spurðu út í þá. Konan fór frá honum árið 2015 og sá lögreglan ástæðu til að láta hana ganga um með neyðarhnapp vegna alvöru málsins.

Til að geta slitið sambúð þeirra þurfti Hæstiréttur að skipa skiptastjóra yfir búi þeirra. Eftir að dómur féll í einkamáli í Hæstarétti birti maðurinn rógburð um tvo dómara. Þeir stefndu honum vegna ummælanna. Var málinu lokið með sátt og birti maðurinn afsökunarbeiðni á Facebook-vegg sínum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×