Viðskipti innlent

Grunaður í fimm ár: Valdið ákærða miklu hugarangri og sett álag á hans nánustu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Birnir Sær Björnsson í héraðsdómi í morgun.
Birnir Sær Björnsson í héraðsdómi í morgun. Vísir/GVA
„Ég er saklaus af þeim ávirðingum sem á mig eru bornar,” sagði Birnir Sær Björnsson, fyrrum verðbréfasali hjá eigin viðskiptum Kaupþings, við upphaf skýrslutöku yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

 

Birnir er ákærður fyrir að hafa tekið þátt í allsherjarmisnotkun bankans á 11 mánaða tímabili fyrir hrun með því að hafa keypt mikið magn af hlutabréfum í Kaupþingi með það að augnamiði að halda verði þeirra uppi.

 

Hann segist hafa sinnt starfi sínu hjá deild eigin viðskipta eftir bestu getu. Hann hafi fengið fyrirmæli frá yfirmönnum sínum um hvernig hann starfaði frá degi til dags og einnig  um einstök viðskipti.

 

Bar traust til yfirmanna sinna

„Ég bar traust til minna yfirmanna og hafði ekki ástæðu til að ætla að farið væri gegn lögum og reglum. [...] Þeir voru á meðal reynslumestu manna á Íslandi varðandi innlendan verðbréfamarkað. [...] Fyrirmæli þeirra voru ekki alltaf í samræmi við mitt eigið mat en ég taldi aldrei að verið væri að brjóta lög.”

 

Þá sagði Birnir jafnframt að þau viðskipti sem hann stundaði hafi átt sér stað í Kauphöll Íslands. Þau hafi því verið undir ströngu eftirliti bæði innan og utan bankans en enginn hafi nokkru sinni gert athugasemd við hegðun hans á markaði.

 

„Það eru óteljandi þættir sem ráða hegðun á markaði og það er ómögulegt að telja þá alla upp í dag til þess að útskýra einstök viðskipti. Það er því hætta á því að menn séu að beita eftiráspeki til þess að skýra það sem gerðist.”

 

Finnst starf hans sett fram með villandi hætti

Birnir gagnrýndi svo málatilbúnað sérstaks saksóknara harðlega:

 

„Þessi staða sem finn mig í að vera sakborningur, og fyrst með réttarstöðu grunaðs manns, hefur nú varað í fimm ár. Þetta hefur valdið mér miklu hugarangri að ótöldu því álagi sem þetta hefur haft á mína nánustu. Framsetning saksóknara hefur einnig valdið mér hugarangri. Hún er mjög hlutdræg. [...] Starf mitt er sett fram með villandi hætti og er til þess fallið að gera það tortryggilegt.”

 

Saksóknari, Björn Þorvaldsson, spyr nú Birni út úr og fer yfir einstaka viðskiptadaga á ákærutímabilinu. Líkt og Pétur Kristinn Guðmarsson gerði, sem einnig var verðbréfasali hjá eigin viðskiptum og er ákærður í málinu, leggur Birnir áherslu á það að hann hafi verið að fylgja stefnu og fyrirmælum yfirmanna í sínu starfi.

Þeir voru Einar Pálmi Sigmundsson, forstöðumaður eigin viðskipta, og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, sem báðir hafa eru sakborningar í málinu. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×