Innlent

Gruna vanskráningu á vinnuslysum í ferðaþjónustu

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Tilkynntum vinnuslysum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu áratugina. Þau voru 2701 á árunum 1987 til 1991 en 9099 á árunum 2012 til 2016.

Á síðustu þrjátíu árum hafa 794 orðið óvinnufærir vegna vinnuslysa og 108 látið lífið. Vinnuslysum hefur sérstaklega fjölgað meðal ríkisstarfsmanna en þar er skráning slysa með besta móti.

Tilkynnt vinnuslys í ferðaþjónustunni eru aftur á móti hlutfallslega mjög fá - miðað við að atvinnugreinin hefur þrefaldast á síðustu fimm árum með þeim afleiðingum að hver starfsmaður þjónustar allt að tvöfalt fleiri ferðamenn.

„Við horfum upp á það að tilkynntu slysin í ferðaþjónustunni eru fá, sem betur fer, ef það væri rétt. En við óttumst að það sé vanskráning á ferðinni og fólk passi ekki upp á skráningu atvika og óhappa. Þetta þurfum við að nálgast af meiri festu,“ segir Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins.

Vísbendingar Vinnueftirlitsins um vanskráningu vinnuslysa í ferðaþjónustu felast meðal annars í sextíu til sjötíu prósent fleiri komum útlendinga á Bráðamóttöku Landspítalans.

Kristinn segir sannanir um að hluti sjúklinganna séu starfsmenn á Íslandi en ekki ferðamenn. Einnig sýni tölfræðin að útlendingar lendi oft í vinnuslysum. 59 vinnuslys eru skráð í veitinga- og hótelrekstri á síðasta ári. Þar af voru 25 útlendingar eða nær helmingur slasaðra.

„Við sjáum að óhóflegt álag er víða á starfsmönnum ferðaþjónustunnar. Álag sem er til þess fallið að leiða til slysa. Mögulega verða slys á einstaklingum sem þekkja ekki rétt sinn, eru ekki mælandi á íslenska tungu og vita ekki hvert á að leita ef slys ber að," segir Kristinn og segir áríðandi að fyrirtæki beri ábyrgð.

Á forvarnaráðstefnu VÍS á morgun verður fjallað um vinnuslys og mun Kristinn, meðal annarra, fjalla nánar um málið þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×