Handbolti

Grótta og Afturelding áfram í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk í kvöld.
Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk í kvöld. Vísir/Stefán
Grótta og Afturelding eru komin áfram í fjórðungsúrslit Coca-Cola bikarkeppni karla en 16-liða úrslitin hófust í kvöld.

Sjá einnig: Sanngjarn Stjörnusigur

Grótta vann FH á Seltjarnarnesi í framlengdum leik, 28-23. Leikurinn var jafn og spennandi en heimamenn tóku völdin í framlengingunni og unnu öruggan sigur.

Í Mosfellsbæ höfðu heimamenn betur gegn Víkingi, botnliði Olísdeildar karla. Eftir jafnan fyrri hálfleik náði Afturelding vænni forystu í þeim síðari. Víkingar minnkuðu muninn á lokamínútunum en sigur heimamanna var ekki í hættu.

Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk fyrir Aftureldingu og Jóhann Jóhannsson fjögur. Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði fimm mörk fyrir Víking.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×