Handbolti

Grótta með öruggan sigur í Eyjum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Leikmenn Gróttu fagna fyrr í vetur
Leikmenn Gróttu fagna fyrr í vetur vísir/valli
Grótta átti ekki í neinum vandræðum með að leggja ÍBV að velli 31-21 í Olís deild kvenna í handbolta í Vestmannaeyjum í dag.

Eins og tölurnar gefa til kynna var sigur Gróttu öruggur og lítil spenna í leiknum en Grótta var 16-8 yfir í hálfleik.

Karólína Bæhrenz Lárudóttir var markahæst en hún skoraði 10 mörk fyrir Gróttu. Laufey Ásta Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk.

Hjá ÍBV var Drífa Þorvaldsdóttir markahæst með 6 mörk. Vera Lopes skoraði 5.

Grótta er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig í 11 leikjum. ÍBV er með 16 stig í fjórða sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×