Handbolti

Grótta, Selfoss og Haukar örugglega áfram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lovísa Thompson var markahæst hjá Íslandsmeisturum Gróttu.
Lovísa Thompson var markahæst hjá Íslandsmeisturum Gróttu. Vísir/Ernir
Olís-deildarliðin Grótta, Selfoss og Haukar komust öll áfram í átta liða úrslit Coca-Cola bikars kvenna í kvöld.

Liðin unnu öll sannfærandi sigra á 1. deildarliðum en Selfoss vann í Digranesi, Grótta í Kaplakrika og Haukar í Austurberginu.

Áður höfðu ÍBV, Stjarnan, Fram, Fylkir og Afturelding tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum sem eru nú klár.



Úrslit og markaskorarar í leikjum kvöldsins í Coca-Cola bikars kvenna:

HK - Selfoss 18-26 (5-11)



Mörk HK: Kolbrún Arna Garðarsdóttir 6, Þórhildur Braga Þórðardóttir 4, Elva Arinbjarnar 2, Berglind Þorsteinsdóttir 1, Rakel Sigurðardóttir 1, Birta Rún Grétarsdóttir 1, Karen Kristinsdóttir 1, Sigríður Hauksdóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1.

Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 7, Dijana Radojevic 5, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 3, Perla Ruth Albertsdóttir 3, Hulda Dís Þrastardóttir 3, Carmen Palamariu 2, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Arna Kristín Einarsdóttir 1, Adina Maria Ghidoarca 1.



FH - Grótta 17-26 (8-12)



Mörk FH: Fanney Þóra Þórsdóttir 8, Laufey Lára Höskuldsdóttir 2, Ingibjörg Pálmadóttir 2, Steinunn Snorradóttir 1, Birna Íris Helgadóttir 1, Arndís Sara Þórsdóttir 1, Hrafnhildur Hekla Björnsdóttir 1, Hafdís Inga Hinriksdóttir 1.

Mörk Gróttu: Lovísa Thompson 6, Anna Katrín Stefánsdóttir 4, Sunna María Einarsdóttir 3, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 2, Emma Havin Sardarsdóttir 2, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 2, Edda Þórunn Þórarinsdóttir 2, Guðný Hjaltadóttir 2, Guðrún Þorláksdóttir 1, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1, Eva Kolbrún Kolbeins 1.



ÍR - Haukar 20-33  (12-18)

Mörk ÍR: Karen Tinna Demian 7, Petra Waage 5, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 3, Jenný Jensdóttir 3, Auður Margrét Pálsdóttir 1, Hildur María Leifsdóttir 1.

Mörk Hauka: Ragnheiður Ragnarsdóttir 7, Ramune Pekarskyte 6, Birta Lind Jóhannsdóttir 4, Elín Anna Baldursdóttir 3, Maria Ines Da Silva Pereira 3, Berta Rut Harðardóttir 3, Vilborg Pétursdóttir 3, María Karlsdóttir 2, Erla Eiríksdóttir 1, Sigríður Jónsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×