Bílar

Gröfusnillingur

Finnur Thorlacius skrifar
Rennur eða rampar til að hlaða eða afhlaða flutningabíla eru bara fyrir klaufa, en svo mætti virðast þegar sést til þessa ráðagóða indverska snillings.

Hann deyr sannarlega ekki ráðalaus þó svo hann eigi ekki svoleiðis „óþarfa“ er hann gerir sér lítið fyrir og setur litla gröfu uppá flutningabíl sem ekki er svo lágt uppí.

Það er sannarlega hægt að súpa hveljur yfir aðförum hans er hann notar kranann á gröfu sinni til að krafla sig uppá pallinn og aðferðin er svo úthugsuð að aðdáun er að. Hvernig í áranum datt honum þetta í hug? Sem fyrr er sjón sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×