Tíska og hönnun

Grófir skór og stórar ullarkápur

Rannveig Ólafsdóttir er hér í kápu frá danska merkinu Gestuz.
Rannveig Ólafsdóttir er hér í kápu frá danska merkinu Gestuz. Vísir/Valli
„Ég er rosalega mikið fyrir þægindi þessa dagana og klæðist helst gallabuxum, grófum stígvélum og léttum jökkum.

Einnig eru stórar ullarkápur eitthvað sem allir verða að eiga í fataskápnum í vetur,“ segir Rannveig Ólafsdóttir verslunareigandi.

Rannveig hefur unnið í fataverslunarbransanum hér á landi í mörg ár og þekkir bransann út og inn.

Hún opnaði nýverið sína eigin verslun, Annaranna, á Laugavegi 77.

Rannveig deilir hér fimm uppáhaldshlutum með lesendum lífsins. Kápu frá Gestuz, skóm frá Corvari, jakka frá American Vintage, hálsmeni frá Hildi Yeoman og gallabuxum frá Joe Jeans.

Hálsmen frá Hildi Hafstein sem eiginmaðurinn gaf mér í jólagjöf og ég tek sjaldan af mér.
Skórnir eru frá ítalska merkinu Corvari, gróf stígvél sem eru hentug inn í haustið.
Jakkinn alveg uppháhalds og ég er að reyna að vera ekki í honum á hverjum degi. Hann er frá American Vintage sem er uppáhaldsmerkið mitt þessa stundina.
„Buxur frá merkinu Joe Jeans en ég elska þær. Það er hrikalega gott að vera í þeim, eiginlega eins og að vera í joggingbuxum.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×