Erlent

Grjótkasti svarað með skotum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Palestínumenn köstuðu grjóti að ísraelska hernum sem svaraði með skothríð.
Palestínumenn köstuðu grjóti að ísraelska hernum sem svaraði með skothríð. Mynd/AFP
Orwah Hammad, fjórtán ára gamall drengur frá Palestínu, lést þegar ísraelskir hermenn svöruðu grjótkasti palestínskra ungmenna með skotum í Jerúsalem á föstudag.

Alls særðust tólf Palestínumenn í átökunum. Ísraelski herinn fullyrti að hermenn hefðu komið í veg fyrir frekari árásir með því að skjóta á Palestínumann sem hefði kastað eldsprengjum að umferðargötu í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×