Grísku stjórnarflokkarnir ósammála um aðgerðir

Fréttablaðið Erlent 06. febrúar 2012 03:30
Poul Thomsen frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Matthias Mors frá framkvæmdastjórn ESB og Klaus Masuch frá Seðlabanka ESB ganga af fundi með Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, í gær.Fréttablaðið/AP
Poul Thomsen frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Matthias Mors frá framkvæmdastjórn ESB og Klaus Masuch frá Seðlabanka ESB ganga af fundi með Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, í gær.Fréttablaðið/AP
Þrátt fyrir að vera í kapphlaupi við tímann hafa grísku stjórnarflokkarnir ekki getað komið sér saman um viðbrögð við kröfum frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um enn harðari aðhaldsaðgerðir.

Gríska stjórnin verður að fallast á þessar aðgerðir, eða sýna með öðrum hætti hvernig hún ætlar sér að draga meira saman í ríkisfjármálum, ætli hún sér að fá frekari fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS upp á 130 milljarða evra.

Næstu stóru gjalddagar ríkisskuldanna verða í mars. Fái Grikkir ekki peningana frá ESB og AGS geta þeir ekki greitt af skuldunum, og þar með verður gríska ríkið komið í greiðsluþrot.

Grísk stjórnvöld hafa undanfarna viku átt í ströngum viðræðum, ekki bara við fulltrúa AGS og ESB, heldur einnig við fulltrúa lánardrottna sinna. Lúkas Papademos forsætisráðherra hefur auk þess staðið í ströngu við að fá stjórnarflokkana til að koma sér saman um aðgerðir, en íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði hefur þverneitað að fallast á kröfur um enn frekar launalækkanir hjá ríkisstarfsmönnum og fleiri uppsagnir í opinbera geiranum.

Mikil andstaða hefur verið, jafnt meðal þingmanna sem alls almennings, við kröfurnar frá ESB og AGS. Samdráttur hefur verið í grísku efnahagslífi fimm ár í röð. Nærri tvö ár eru síðan gríska ríkið byrjaði að draga saman seglin með ströngum aðhaldsaðgerðum, sem bitnað hafa illa á öllum almenningi. Þær aðgerðir hafa ekki dugað til að koma ríkisfjármálum á réttan kjöl.

Atvinnuleysið er nærri 20 prósent og flest heimili eiga í miklum erfiðleikum með að ná endum saman. Þolinmæði Evrópusambandsins virðist hins vegar vera á þrotum. Þjóðverjar beita grísk stjórnvöld hörðum þrýstingi og nú um helgina vildi Claude Juncker, leiðtogi ríkjahóps evrusvæðisins, ekki lengur útiloka þann möguleika að Grikkland verði hreinlega gjaldþrota.

Antonis Samaras, leiðtogi íhaldsmanna, sagði í gær að lánardrottnar Grikklands séu að „biðja um meiri kreppu, sem landið getur ekki þolað. Ég er að berjast með öllum tiltækum ráðum gegn þessu“.
Georg Papandreú, leiðtogi sósíalista, er sömuleiðis andvígur sumum af þeim kröfum, sem Grikkjum er gert að uppfylla. Hann er á móti því að laun verði lækkuð og vill að ríkið taki að sér rekstur bankanna, að minnsta kosti tímabundið.

Viðræðum verður haldið áfram á morgun í von um að takast megi að koma saman einhvers konar málamiðlun á síðustu stundu.
gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ s...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 23:55

Loftsteinadrífa skellur á Jörðinni

Bandaríski geimfarinn Don Pettit hefur mikið dálæti af því að deila ljósmyndum sínum. Þett...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:33

"Þetta er Nelson. Hann stal símanum mínum"

Bandarísk kona sem glataði iPhone snjallsímanum sínum í skemmtisiglingu fyrir nokkru hefur...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:05

Starfsfólk Heathrow undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

Starfsfólk Heathrow flugvallarins í Lundúnum undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana sem hald...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 21:06

Tíu þjóðir komust áfram í Eurovision

Mikið var um dýrðir í Bakú í kvöld þegar seinni undankeppni Eurovision fór fram. Tíu þjóði...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 20:41

Rætt um lofthelgi Íslands í Finnlandi

Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, neitaði í dag ásökunum stjórnarandstæðinga um ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 15:56

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:59

Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd

Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 10:28

Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra

Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:15

Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni

Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitar...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:13

Dæmdur í langa fangelsisvist

Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 12:02

Plastpokar bannaðir í Los Angeles

Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:55

Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina

Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er rá...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:06

Góð þátttaka í Egyptalandi

Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til end...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 07:00

Langar biðraðir við kjörstaði

„Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir W...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 05:00

Biðin styttist hjá Assange

Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 04:00

Líkjast persónuleika manna

Simpansar og órangútanar eru með persónuleika sem líkjast mjög persónuleika manna. Þetta e...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:30

Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsva...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Grísku stjórnarflokkarnir ósammála um aðgerðir