Viðskipti erlent

Gríska ríkið er gjaldþrota

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Tugþúsundir Grikkja æddu á götur út í gær til að mótmæla. Sumir kölluðu á samlanda sína að gangast undir kröfur lánardrottna Grikklands en aðrir vildu hafna þeim.
Tugþúsundir Grikkja æddu á götur út í gær til að mótmæla. Sumir kölluðu á samlanda sína að gangast undir kröfur lánardrottna Grikklands en aðrir vildu hafna þeim. nordicphotos/afp
Gríska ríkið varð gjaldþrota í gær þegar landið varð það fyrsta með þróað efnahagskerfi til þess að vanrækja afborgun á láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Grikkir munu þar af leiðandi ekki fá fleiri lán úr sjóðnum.

Gríska ríkisstjórnin bað stöðugleikaráð Evrópusambandsins um nýjan samning um neyðaraðstoð, klukkutímum áður en greiða átti af skuld Grikklands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gærkvöld. Bað Grikkland um tveggja ára samning sem myndi færa gríska ríkinu um þrjátíu milljarða evra og funduðu fjármálaráðherrar evrusvæðisins með grísku ríkisstjórninni í gegnum síma. Fundurinn var ekki árangursríkur og endaði með þeim hætti að fjármálaráðherrarnir höfnuðu bón grísku ríkisstjórnarinnar.

Búist er við að viðræður um nýjan samning um neyðaraðstoð haldi áfram í dag.

„Vegna verklagsreglna var ekki hægt að framlengja aðstoðina fram yfir daginn í dag,“ sagði fjármálaráðherra Slóvakíu, Peter Kazimir, í Twitter-færslu eftir símafundinn í gær.

Grikkland er því í fyrsta sinn síðan 2010 án aðstoðar frá evrusvæðinu, Seðlabanka Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Framtíð Grikklands í evrusvæðinu er sömuleiðis óljós.

Framtíðarhorfur fyrir gríska ríkið eru slæmar en samkvæmt gögnum sem breska fréttastofan The Guardian hefur undir höndum telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að skuldir gríska ríkisins verði 118 prósent af vergri landsframleiðslu árið 2030 ef ráðist verður í þær niðurskurðaraðgerðir sem lánardrottnar Grikklands krefjast. Hlutfallið er 175 prósent eins og staðan er í dag en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn miðar við 110 prósent sem sjálfbært hlutfall.

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, boðaði á mánudag til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Grikkir ættu að gangast undir kröfur lánardrottnanna sem settar eru fram sem skilyrði um aukna aðstoð. Tsipras hvetur Grikki til þess að hafna kröfunum en Evrópusambandið hvetur til samþykktar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×