Tónlist

Grípur þrisvar sinnum í píkuna á sér í hverju setti

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Steiney ásamt þeim Blævi og Söru.
Steiney ásamt þeim Blævi og Söru. Vísir/Valli
„Það eru algjör forréttindi fyrir mig að fá að vera með í þessum hópi,“ segir Steiney Skúladóttir, nýjasti meðlimur Reykjavíkurdætra.

„Ég er búin að vinna í sumar með Blævi og Söru sem báðar eru í hljómsveitinni. Við erum einn af listhópum Hins hússins, Þrjár basískar, og höfum meðal annars verið að rappa þannig að innganga mín í sveitina kom í beinu framhaldi,“ segir Steiney sem hefur fengið þjálfun frá dætrunum.

„Þær hafa kennt mér hvernig maður á að haga sér sem rappari. Þær hafa sagt mér til dæmis að grípa þrisvar um píkuna á mér í hverju setti og segja fokk í hljóði til að ná fram réttu „attitude“-i. Ég er ekki mjög reið manneskja en er búin að vera að mana mig upp í þetta því það er ekki hægt að vera næs rappari. Eða kannski er það hægt? Ég kannski prófa það?“ veltir nýbakaða rappettan fyrir sér.

Steiney er búin að koma fram tvisvar með sveitinni. Næst kemur hún fram með þeim í Druslugöngunni sem gengin verður á laugardaginn en Reykjavíkurdætur, ásamt Halldóri Eldjárn, sömdu druslugöngulagið, D.R.U.S.L.A.

„Reykjavíkurdætur eru fyrst og fremst vettvangur fyrir stelpur að koma fram og rappa. Þetta er tryllt listform,“ segir Steiney.

Stelpurnar mættu í viðtal í Harmageddon á X-inu í gær þar sem lagið var frumflutt. Hægt er á hlusta á viðtalið í spilaranum efst í fréttinni eða á útvarpssíðu Vísis.

Hér fyrir neðan má síðan sjá myndband við lagið Fiesta.


Tengdar fréttir

Mikil orka

Það var mikil ró yfir gestum hátíðarinnar og flestir að jafna sig eftir hamagang gærkvöldsins áður en stúlkurnar í Reykjavíkurdætrum stigu á sviðið Gimli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×