Körfubolti

Grindvíkingar í þjálfaraleit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Steinar lék lengi með karlaliði Grindavíkur.
Björn Steinar lék lengi með karlaliði Grindavíkur. vísir
Björn Steinar Brynjólfsson hefur látið af störfum sem þjálfari Grindavíkur í Domino's deild kvenna í körfubolta. Frá þessu er greint á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar félagsins.

Ástæðan fyrir því að Björn stígur til hliðar er slæmt gengi Grindavíkur í upphafi tímabils.

Grindvíkingar hafa aðeins unnið tvo af fyrstu átta leikjum sínum og sitja í 6. sæti Domino's deildarinnar.

Björn tók við Grindavíkurliðinu af Daníel Guðna Guðmundssyni fyrir tímabilið. Þetta var frumraun hans í meistaraflokksþjálfun.

Björn stýrði Grindavík í síðasta sinn í kvöld þegar liðið tapaði 67-59 fyrir Stjörnunni í Ásgarði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×