Körfubolti

Grindvíkingar fengu ekki góða áramótagjöf frá kananum sínum | „Vonandi blessun í dulargervi“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ashley Grimes.
Ashley Grimes. Vísir/Anton
Kvennaliði Grindavíkur gekk ekki vel í fyrri hluta Domino´s deildarinnar og ekki fór jólafríið heldur vel með liðið. Liðið mætir til leiks bæði án bandarísks leikmanns og aðalþjálfara í fyrsta leik á nýju ári.

Grindvíkingar segja frá því á fésbókarsíðu sinni að hin bandaríska Ashley Grimes hafi tilkynnt þeim þann 28. desember að hún myndi ekki snúa til baka eftir jólafrí.

„Auðvitað hefði verið best að fá að vita af þessari ákvörðun Ashley um leið og hún hélt heim í jólafrí en við teljum allar líkur á að hún hafi þá þegar verið búin að taka ákvörðunina. Betra er samt seint en aldrei,“ segir í fréttinni.

Ashley Grimes var með 23,9 stig, 10,9 fráköst og 3,9 stoðsendingar að meðaltali í þrettán leikjum sínum fyrir jól. Hún hækkaði framlag sitt í hverjum mánuði en í desember var hún með 25,7 stig, 11,3 frákös og 4,0 stoðsendingar að meðaltali.

„Ashley skilaði ágætis tölum en miðað við hæfileikana sem í henni búa er deginum ljósara að hún „feel-aði“ sig ekki vel á Íslandi því hún sýndi bara brotabrot og gaf lítið af sér. Þess vegna mun þetta vonandi reynast blessun í dulargervi en allar klær eru úti til að finna nýjan Kana og koma honum á skerið sem fyrst,“ segir ennfremur í fréttinni.

Bjarni Magnússon tók við liðinu af Birni Steinari Brynjólfssyni á miðju tímabili en hann getur ekki verið á hliðarlínunni í fyrsta leiknum á nýju ári sem er á móti Stjörnunni á laugardaginn kemur.

„Kvennaliðið lenti í meiri hrakningum í jólafríinu því Bjarni Magnússon þjálfari, veikist nokkuð illa stuttu fyrir jól og þurfti að dvelja á sjúkrahúsi nokkra daga en er kominn heim og er á góðum batavegi. Ekki er um alvarleg veikindi að ræða en hann þarf einhverja daga til að jafna sig og mun gamla kempan Ellert Sig Magnússon taka við keflinu á meðan og stýrir liðinu í fyrsta leik eftir jólafrí á laugardag en þá mætum við Stjörnunni á heimavelli,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×