Körfubolti

Grindavíkurkonur sluppu við 25 daga frí en Stjarnan ekki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Kara Sturludóttir og félagar í Stjörnuliðinu hafa góðan tíma fyrir æfingaferð á miðju tímabili í febrúar.
Margrét Kara Sturludóttir og félagar í Stjörnuliðinu hafa góðan tíma fyrir æfingaferð á miðju tímabili í febrúar. Vísir/VIlhelm
Bikarmeistarar Grindavíkur í kvennakörfunni fá tækifæri til að verja bikarmeistaratitilinn í Laugardalshöllinni 13. febrúar næstkomandi en það kom í ljós eftir að liðið vann Stjörnuna í undanúrslitunum í gær.

Grindavík vann sannfræandi sigur á nýliðum Stjörnunnar sem áttu þarna möguleika á því að komast í sinn fyrsta bikarúrslitaleik. Grindavík mætir Snæfelli í úrslitaleiknum en Íslandsmeistararnir úr Hólminum unnu sinn undanúrslitaleik í Keflavík.

Grindavík tryggði sér ekki aðeins sæti í bikarúrslitaleiknum heldur komu Grindavíkurstelpurnar einnig í veg fyrir að þær lentu í næstum því fjögurra vikna fríi í febrúar.

Bikarúrslitaleikurinn fer fram 13. febrúar og vegna hans er frí í Domino´s deild kvenna frá 6. febrúar. Strax eftir bikarúrslitaleikinn kemur síðan fimmtán daga landsleikjahlé þar sem íslenska landsliðið mætir Portúgal og Ungverjalandi í undankeppni EM.

Næstu deildarleikir eftir landsleikjahléið fara því ekki fram fyrr 28. og 29. febrúar. Grindavíkurliðið situr hinsvegar hjá í þeirri umferð. Það eru bara sjö lið í deildinni og eitt lið situr hjá í hverri umferð.

Frá því að Grindavík spilar síðasta deildarleik sinn fyrir bikarúrslitaleikinn 6. febrúar líða 25 dagar þangað til kemur að næsta deildarleik liðsins 2. mars. Grindavíkurliðið hefði ekkert spilað á þessu tímabili hefði liðið ekki unnið leikinn í gærkvöldi.

Grindavíkurstelpur fá hinsvegar góðan tíma til að fagna bikarmeistaratitlinum takist þeim að verja titilinn því eftir bikarúrslitaleikinn verða 18 dagar í næsta leik hjá þeim. Snæfellsliðið, mótherjar þeirra í úrslitaleiknum, spila næsta deildarleik sinn 15 dögum eftir leikinn í Höllinni.

Stjörnuliðið sleppur ekki við langt frí því Garðabæjarkonur spila engan keppnisleik frá 3. febrúar til 29. Febrúar því þær sitja hjá í umferðinni fyrir bikarúrslitaleikinn.

Þegar Stjörnukonur ljúka leik sínum á móti Hamar 3. Febrúar munu þær bíða í 26 daga eftir næsta leik sem verður á móti Haukum 29. febrúar.  Það verður að teljast afar óvenjulegt að lið í efstu deild spili ekki leik í tæpar fjórar vikur en þjálfarinn Baldur Ingi Jónasson mun væntanlega finna leiðir til að halda þeim við efnið þessa 26 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×