Íslenski boltinn

Grindavík tyllti sér á toppinn með stórsigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mynd/Vísir
Grindavík tyllti sér á toppinn með öruggum 5-0 sigri á Leikni Fáskrúðsfirði í lokaleik 3. umferðar Inkasso-deildarinnar í dag en Grindvíkingar eru með fullt hús stiga að þremur umferðum loknum.

Grindvíkingar komust yfir tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks með marki Andra Rúnars Bjarnasonar af vítapunktinum en Alexander Veigar Þórarinsson bætti við öðru marki á upphafsmínútum seinni hálfleiks.

Jósef Kristinn Jósefsson bætti við þriðja marki Grindvíkinga á 62. mínútu en stuttu síðar fékk Jose Omar Rocamora reisupassann í liði Leiknis.

Aron Freyr Róbertsson og Fransisco Eduardo Cruz bættu við mörkum fyrir Grindvíkinga áður en flautað var til leiksloka og lauk leiknum með 5-0 sigri Grindavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×