Íslenski boltinn

Grindavík lagði Hauka og jafnt í Kórnum | Sjáðu mörkin í Kórnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Keppni hófst í 1. deild karla, Inkasso-deildinni, í kvöld með tveimur leikjum.

Í Kórinn var Þorvaldur Örlygsson mættur með lið Keflavíkur á sinn gamla heimavöll. Þangað sótti hann eitt stig en leikurinn fór 1-1.

Ragnar Leósson skoraði úr vítaspyrnu fyrir HK á 62. mínútu en Sigurbergur Elísson jafnaði tíu mínútum fyrir leikslok.

Í Grindavík unnu heimamenn sigur á Haukum, 3-2, í hörkuleik.

Alexander Veigar Þórarinsson, Hákon Ívar Ólafsson og Gunnar Þorsteinsson skoruðu fyrir Grindavík. Aron Jóhannsson og Þórður Jón Jóhannesson skoruðu fyrir Hauka.

Á morgun fara svo fram fjórir leikir í deildinni.

vísir/stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×