Innlent

Grímseyingar vilja lokaðan íbúafund

sveinn arnarsson skrifar
Unnið er að því að finna lausn á atvinnumálum Grímseyinga þar sem útgerðir berjast í bökkum.
Unnið er að því að finna lausn á atvinnumálum Grímseyinga þar sem útgerðir berjast í bökkum. Fréttablaðið/Björn Þór Sigbjörnsson
Íbúar í Grímsey hafa látið bæjaryfirvöld á Akureyri vita að þau vilji ekki ræða framtíð búsetu í eynni og sín hugðarefni undir kastljósi fjölmiðla. Boðuðum borgarafundi í Grímsey var frestað vegna óviðráðanlegra orsaka, eins og það var orðað í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ í gær, og hefur ekki verið boðaður nýr fundur meðal íbúa eyjarinnar. Fundurinn átti að vera opinn öllum þeim sem áttu kost á að komast til eyjarinnar.

Eiríkur Björn Björgvinsson
„Fulltrúar hverfisráðs Grímseyjar hafa komið að máli við okkur og látið okkur vita af áhyggjum sínum af því að hafa fundinn opinn fjölmiðlum. Það skiptir miklu máli að fundurinn verði upplýsandi og að gott samtal náist,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri.

Útgerð í eynni stendur á tímamótum, skuldir útgerðarfélaganna eru miklar og Íslandsbanki þrýstir á að félögin selji eignir til að standa straum af greiðslu skulda félaganna. Eiríkur Björn bæjarstjóri vonar að hægt verði að funda sem fyrst með Grímseyingum. „Það er mikilvægt að við náum að eiga samtal við heimamenn sem allra fyrst til þess að ræða stöðu atvinnumála í Grímsey. Staðan er krítísk og við viljum finna lausn eins fljótt og auðið er.“

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
Akureyrarkaupstaður og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar vinna að lausn á vandamálum útgerða í Grímsey með aðkomu Byggðastofnunar. Formaður stjórnar Byggðastofnunar, Þóroddur Bjarnason prófessor, hefur sagt að ef ekki næst samstaða allra aðila í eynni um veiðar og vinnslu sé líklegt að byggð í eynni leggist af. Atvinnulíf í eynni er afar einhæft, sjávarútvegur er grunnstoðin og því er mikið undir fyrir íbúa að rekstur útgerða, sem skulda um þrjá milljarða, verði tryggður.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélagsins, vinnur að því með útgerðum í eynni að leita lausna á sameiginlegum vanda þeirra og koma með hugmyndir sem gætu tryggt búsetu og mannsæmandi líf í eynni. „Ég er vongóður um að það takist að ná viðunandi lausn á málinu,“ segir Þorvaldur Lúðvík.


Tengdar fréttir

Útgerðin háð geðþótta banka

„Í Grímsey og öðrum sjávarþorpum við Íslandsstrendur býr fólk sem á sama rétt til að velja sér búsetu og íbúar annarra byggðarlaga,“ segir í ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja.

Þykir leitt að svörin ollu sárindum

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Akureyri, segir leiðinlegt hafi svör hans í umfjöllun Vísis um kynferðisbrot í Grímsey verið túlkuð á annan hátt en til var ætlast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×