Körfubolti

Gríman hans Kobe fer á uppboð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe með grímuna góðu.
Kobe með grímuna góðu. vísir/getty
Hin fræga andlitsgríma sem Kobe Bryant spilaði með á sínum tíma er á leið á uppboð. Ágóðinn rennur til góðgerðarmála.

Kobe nefbrotnaði í stjörnuleiknum árið 2012 þar sem hann bætti stigamet Michael Jordan. Hann varð svo að spila með grímuna í næstu fjórum leikjum Lakers. Var þá byrjað að tala um hann sem „Masked Mamba“.

Lágmarksboð í grímuna verður 1,7 milljón krónur en búist er við því að gríman fari á mun meira en það.

Kobe hafði áður boðið upp aðra andlitsgrímu sem hann notaði á sama tímabili. Hún fór á 7,7 milljónir króna og ágóðinn rann í góðgerðarsjóð sem Kobe og eiginkona hans, Vanesssa, reka.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×