Matur

Grilluð grísarif með sinneps-bourbon BBQ-sósu að hætti Hrefnu Rósu Sætran

Hrefna Sætran
Hrefna Sætran Vísir/Stefán

Grilluð grísarif með heimagerðri sinneps-bourbon BBQ-sósu

Grísarifin (Fyrir 4)

2 kg af grísarifjum (4 lengjur)

6 msk. gróft sjávarsalt

2 stilkar sítrónugras

2 teningar nautakjötskraftur

1 tsk. svört piparkorn

4 stk. stjörnuanís

2 hvítlauksgeirar

2 lítrar vatn

Aðferð:

Nuddið saltinu á rifin og látið standa þannig í 1 klst. Skolið rifin. Setjið á meðan vatnið, gróft saxað sítrónugrasið, nautakraftinn, piparkornin, stjörnuanísinn og gróft saxaðan hvítlaukinn í pott og hitið þar til krafturinn er uppleystur. Kælið vökvann þar til hann er við stofuhita. Setjið rifin í eldfast mót, hellið vökvanum yfir og eldið í 160°C heitum ofni í 2½ tíma. Takið rifin upp úr vökvanum og leyfið þeim að kólna.

Sinneps-bourbon BBQ-sósa

2 stk. vorlaukur

1 stk. laukur

2 stk. hvítlaukur

50 g púðursykur

100 g tómatsósa

40 g tómatpurré

50 ml eplaedik

100 ml eplasafi

1 tsk. tabasco-sósa

1 stk. cummin-fræ

200 ml bourbon viskí, t.d. Jack Daniels

Grísarif að hætti Hrefnu Sætran.MYND/Björn Árnason

Aðferð

Saxið grænmetið og steikið það við vægan hita upp úr olíu. Bætið hinu hráefninu út í og sjóðið saman við vægan hita þar til sósan er þykk. Maukið svo sósuna og kælið hana. Það er hægt að útbúa þessa sósu í miklu magni og geyma. Einnig er hægt að sleppa áfenginu og setja t.d. meiri eplasafa eða einhvern dökkan gosdrykk í staðinn. 

Þegar sósan og rifin eru klár er næsta skref að kveikja upp í grillinu. Gott er að pensla rifin með smá hunangi og grilla þau þannig fyrst á báðum hliðum. Svo er um að gera að pensla þau vel og vandlega með BBQ-sósunni, snúa þeim reglulega og pensla reglulega eða svona 4-5 sinnum. Rifin eru elduð svo að í þessu skrefi erum við bara að gera þau djúsí og falleg með sósunni. Þetta tekur svona 20 mínútur. Gott er að bera rifin fram með bát af sítrusávexti til að fríska upp bragðið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×