Innlent

Grillin geta reynst varasöm

Gissur Sigurðsson skrifar
Jói Fel. Þessi grillari, sem rekur grillskóla, er með allt sitt á hreinu, en víst er að svo er ekki með alla.
Jói Fel. Þessi grillari, sem rekur grillskóla, er með allt sitt á hreinu, en víst er að svo er ekki með alla.
Eldlur kviknaði út frá gaskúti á svölum húss í Reykjavík á áttunda tímanum í gærkvöldi og kölluðu íbúarnir þegar á slökkviliðið.

Slökkviliðsmönnum tókst að skrúfa fyrir gasið og slökkva eldinn áður en tjón hlytist af, en um tíma var hættuástand á svölunum. Forvarnadeild slökkiliðsins á höfuðborgarsvæðinu ítrekar þær ábendingar til almennings að huga vel að ástandi leiðsla á milli kúta og sjálfra grillanna. Þær þurfi að endurnýja á nokkurra ára fresti, jafnvel þótt ekkert sjái á þeim við sjónræna skoðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×